Pasar al contenido principal
x

Vettvangsnámskeið í vistfræði (Field Course in Ecology )

Idioma

Islandés

Formato del curso On-site
Fecha 2020-08-24 - 2020-11-27

Námskeiðslýsing:

Helstu tegundir lífvera á landi og í ferskvatni Íslands. Kynntar eru helstu aðferðir við rannsóknir á vistfræði þurrlendis og ferskvatns. Lögð er áhersla á öflun og greiningu gagna og samanburð við fræðilega þekkingu um vistfræði þessara búsvæða.  Samantekt og kynning á rannsóknarniðurstöðum.
Vettvangsferð verður 15. – 21. ágúst og auk þess fer kennsla fram tvær síðustu helgarnar í ágúst. Nemendur kynna verkefni sín einn laugardag í lok september.

Skil á stuttri samantekt á gögnum og á dagbók um vettvangsvinnu  22. ágúst. Nemendur velja eitt rannsóknarefni úr vettvangsferðinni og greina það ítarlegar, skila skýrslu um þá vinnu ásamt að kynna niðurstöður verkefnisins með fyrirlestri í seinni hluta september.

Námsmat byggir á kynningu á rannsóknarefni hvers nema í lok námskeiðs (40%) og skýrslu um sama efni (60%). Allir nemendur verða að mæta í námsferð og skila dagbók til að geta lokið námskeiðinu.

Prerrequisitos

Resultados del aprendizaje

Að námskeiði loknu eiga nemendur að:

  •  þekkja helstu íslensku lykiltegundir dýra og plantna í sínu náttúrulega umhverfi
  • kunna að setja fram afmarkaða rannsóknarspurningu og fylgja henni sjálfir eftir með viðeigandi gagnasöfnun, úrvinnslu, túlkun, skrifum og framsetningu

Archivos/Documentos

Categorías CINE (ISCED)

Biología
Ecología